Sker Restaurant festir kaup á Welcome apartments
09.04.2025
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að við höfum fest kaup á Welcome Apartments á Ólafsbraut 19.
Þetta er stórt og spennandi skref fyrir okkur, og framtíðin lítur einstaklega björt út.
Frá og með 1. maí 2025 munum við bjóða upp á gistingu fyrir okkar viðskiptavini. Í fyrstu munum við fara í léttar lagfæringar á húsnæðinu og síðar munum við ráðast í frekari endurbætur.
Ef þú hefur áhuga á að bóka herbergi, ekki hika við að hafa samband á info@skerrestaurant.is.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur!